Þyrnirós

Það var ég í dag, algjör Þyrnirós, þangað til að prinsinn minn kom og kyssti mig klukkan þrjú í dag... Já, ég er sko að meina þetta, ég fór að vísu að sofa um tvö í nótt, en fór ekki á fætur fyrr en klukkan þrjú í dag. Mikið rosalega hefur líkaminn minn þurft á hvíld að haldaSleeping Ég veit að ég er varla búin að tala um neitt annað en þennan blessaða hita, en það er pottþétt hans vegna að ég breyttist í Þyrnirós í dag.

Þannig að auka deginum með fjölskyldunni var eytt í svefn, gaman fyrir börnin mín eða þannig... Það er samt svo sætt, þegar ég breytist í Þyrnirós, þá eru börnin mín alltaf svo ánægð að sjá mig þegar ég vakna, sérstaklega Mikaela mín. Hún hleypur alltaf til mín, og kallar til krakkanna, mamma er vöknuð!!!!! Svo knúsar hún mig vel og lengi, og ég veit að hún er búin að bíða og bíða og bíða eftir að ég vakni, greyið mitt litla. Hún var búin að lita handa mér þrjár myndir í prinsessu litabókinni sinni, sæta stelpan mín. Það er svo fyndið, af því að ég er byrjuð á brúðkaupsundirbúningnum og er byrjuð að skoða vefsíður, og kaupa blöð og svoleiðis, þá eru stelpurnar mínar þrjár orðnar svaka áhugasamar um brúðkaupið. Þær vilja koma með mér þegar ég fer að máta kjóla, þær vilja fara að skoða sína kjóla, og svo lengi mætti telja. Þær skilja auðvitað ekki allan undirbúninginn sem fer í þetta, hvað þá klukkutímana sem að það tekur.

Þetta er allt voða spennandi, fyrir mig og þær, það er gaman fyrir mig að geta sýnt þeim myndir af kjólum og svona, því að ekki finnst manninum mínum eitthvað voða gaman að skoða þessi blöð sem ég er að lesaPouty Ég er spennt fyrir þessu, en sé líka hversu auðvelt það er að verða stressuð yfir þessu öllu. Ég þarf að passa mig á að leyfa stressinu ekki að verða of mikið, og svo verð ég líka að finna mér hlutavinnu, annars verður ekki hægt að borga neitt fyrir þetta blessaða brúðkaup. Við ætlum að hafa þetta lítið og laggott, en ég sé samt hversu auðveldlega þetta getur farið útí algjörar öfgar... ég hef ekki efni á að leyfa því að gerast...

Ef að ég get planað brúðkaupið á sama hátt og ég gerði jólin í fyrra, þá mun þetta allt saman fara vel, því að ég byrjaði á að kaupa jólagjafir í Október í fyrra, og gat gefið öllum eitthvað smá, og börnin fengu það sem þau vildu. Þannig að, ég hef tíu mánuði til þess að kaupa allt fyrir brúðkaupið, þannig að, ef ég geri smá í hverjum mánuði, þá munum við hafa efni á að hafa brúðkaupið eins og við viljum hafa það...og ef það gerist, þá verður þetta draumur í dós...

Mér finnst ennþá ótrúlegt að ég sé að fara að gifta mig. Sannleikurinn er 100% sá að ég bjóst ekki við að finna ástina aftur, hvað þá sanna, trúa, heita ást. Að vera elskuð heitt og skilyrðislaust, að vera virðuð og dýrkuð, að finna manninn sem mig dreymdi um þegar ég var einstæð móðir, það er kraftaverki líkast. Hversu heppin er ég? Það verður yndislegt að giftast honum, að deila lífinu með honum, að eldast með honum. Þessvegna verð ég að plana brúðkaupsdaginn okkar vel, af því að ég vil að hann verði eftirminnilegur, ekki bara í huga mínum og Tim, heldur í huga allra þeirra sem geta deilt deginum með okkur.

Núna ætla ég að hætta þessu blaðri, og horfa á sjónvarpsþáttinn okkar Tim með honum. Það er yndislegasti tími dagsins í okkar lífi, um hálftíu á kvöldin, börnin í draumaheiminum, Tim og ég á sófanum, hönd í hönd, fótleggur hans á mínum, og ég að strjúka slæma hnéð hans. Ástin og friðurinn eru sterkust á þessum tíma á heimili okkar, vinna dagsins búin, og loksins okkar tími kominn til þess að njóta hvors annars og slaka áHeart Lífið getur verið svo gott, finnst ykkur það ekki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Hún Þyrnirós var besta barn ... besta barn ..." - og það ert þú þá

Stundum segir líkaminn bara: Hey! Enoug's enough - I'm sleeping in now!!! Og fjölskyldan virðist skilja þig vel. Sama hvað öllum pirring líður (varðandi síðustu færslu þína), þá er það smámál miðað við svo margt, og það var frábær bók skrifuð um þetta um árið: Don't Sweat the Small Stuff ... and it's all small stuff - virkilega góð lesning - gefin út á íslensku: Ekki láta smámálin ergja þig

Maður forgangsraðar hlutunum í lífinu og auðvitað erum við það fullorðin bæði að við vitum hver forgangsröðunin er. Við viljum bara og höfum áhyggjur af hlutum, og þá er gott að ræða um þá. Nauðsynlegt alveg.

Þú hefur fundið ástina aftur, og hún er svo sönn. Brúðkaupið/giftingin mun staðfesta ást ykkar Tims á hvert öðru og í forminu til, búa til fastari fjölskyldumynd fyrir börnin. "Luck comes to those who deserve it" ... og þú hefur átt það skilið að finna Tim. Ég mun fagna með ykkur á þessum degi, en ég vona að hann verði ykkur eftirminnilegur án þess að fara út í öfgar, eins og þú segir. Því normið segir manni oft að gera hitt, en það er allt í lagi að gera "þetta" - ef þú skilur hvað ég á við.

Lífið er yndislegt - ó já ó já. Að horfa á hlutina í réttu samhengi er nauðsynlegt. Eins og með forgangsröðunina. Mér sýnist þú vera með þessa hluti alveg á tæru. Enda ertu bara yndisleg.

Knús og kveðjur frá Akureyri, elsku besta Bertha. Kossar í bónus!

Þinn vinur, Doddi  

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 07:21

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta var eitthvað svo yndisleg og "beint frá hjartanu" færsla! Mundu bara eitt Bertha mín að alveg sama hvað stórt eða lítið brúðkaupið þitt verður þá er það dagurinn sjálfur og að heitast ástinni sinni sem er það sem upp úr stendur. Ég var sjálf í svipuðum sporum og þú einu sinni, einstæð með tvö börn og átti ekki von á því að það myndi breytast en þá kynntist ég ástinni minni og í dag eigum við 3 ára brúðkaupsafmæli, áttum yndislegt brúðkaup með nánustu fjölskyldumeðlimum og þetta var dagur sem ég mun aldrei gleyma.

Farðu nú vel með þig og ég er sammála Dodda, líkaminn segir okkur alveg hvenær á að hægja á.  Þú ert æðisleg!

Huld S. Ringsted, 4.9.2007 kl. 08:53

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Greta Björg Úlfsdóttir, 4.9.2007 kl. 08:54

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg dásamleg færsla Bertha mín.  Og mikið er þetta yndislegt eins og þú segir að finna þann eina rétta.  Það er frábært hjá þér að taka þessa stefnu að kaupa hlutina smátt og smátt.  Ég veit að þú þarft að gera hlutina þannig.  Og mikið á Tim gott að eignast konu eins og þig, sem nýtir allt vel.  Það skiptir ekki svo litlu máli.  Knús til þín og þinna.  Og takk fyrir að deila slíkri birtu ást og kærleika með okkur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.9.2007 kl. 09:22

5 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Takk, elskurnar Það eruð þið sem eruð yndisleg.... Mér finnst alltaf svo gott að getað sest fyrir framan við tölvuna og látið allt flakka, þegar það gerist þá kemur það beint frá hjartanu, ég tel mig rosalega heppna að hafa ykkur hér að sem að kunnið að meta hreinskilnina mína, og væmnina í þokkabót...takk aftur, dúllur

Bertha Sigmundsdóttir, 4.9.2007 kl. 15:40

6 Smámynd: Eva

Frábær færsla hjá þér eins og venjulega einlæg og sæt ég er viss um að þetta þa allt eftir að ganga vel hjá þér knús...............

Eva , 4.9.2007 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband